Færsluflokkur: Bloggar
Flottir tenórar.
27.6.2010 | 09:41
Tenórarnir þrír eru ekki lengur til - en nú eru fjórir tenórar aldeilis að slá í gegn vestanhafs.
Þeir eru Kanadískir og hafa komið fram í vinsælustu sjónvarpsþáttum vestra og sungið á stórviðburðum.
Og hér syngja þeir Ave Maria
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til Elísu
19.6.2010 | 23:05
Held að ALLIR þekki lagið Til Elisu eftir Beethoven. Ég er allavega oft beðin að spila það :)
Hérna fann ég nýstárlega útgáfu af laginu ..... og spilað á tvo gítara en einum gítarleikara - sem ekki er algengt að sjá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tvö falleg sænsk lög.
19.6.2010 | 21:47
Ég var að vesenast með nótur að lagi í dag: Gabriellas sång. Lagið þekkti ég ekkert og fletti því upp á youtube.com og fann þetta:
Þegar ég fór að skoða þetta nánar, sá ég að lagið er úr sænskri kvikmynd sem fær mjög góða dóma t.d. á IMDB.com. Myndin heitir á frummálinu "Så som i Himmelen" og á ensku "As it is in Heaven".
Og auðvitað fann ég klippu úr myndinni með laginu:
Mig langar líka að segja ykkur frá öðru sænsku lagi sem góður vinur minn sendi mér fyrir tveimur árum. Hér er lagið sungið af Ainbusk hópnum og drengjakór:
Já - Svíar hafa gert meira gott í músík heldur en ABBA .... :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ef ég gæti talað við dýrin ....
19.5.2010 | 00:32
... skilið dýrin, dansað við dýrin ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Angelites - Búlgarski kvennakórinn
9.5.2010 | 16:58
Þessi frábæri kvennakór hélt alveg frábæra tónleika í Hallgrímskirkju í maí 2006.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Búlgarskar raddir
9.5.2010 | 16:53
Stúlknakór útvarpsins í Búlgaríu á tónleikaferð í Japan árið 2007.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ótrúleg söngrödd í þessari ungu stúlku.
9.5.2010 | 16:38
Fann myndbönd með þessari stúlku, Aiyönu-Lee Anderson á youtube. Hún byrjaði að syngja tveggja ára, enda á hún kyn til. Mamma hennar er söngkona og í föðurætt á hún ýmsa tónlistarmenn að.
Þetta myndband er tekið þegar hún var átta ára:
Hér eru upplýsingar um hana á myndbandi:
Er möguleiki að sex ára barn geti sungið svona:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gömul lög - nýir tímar
5.5.2010 | 12:24
Vitað mál er að ef lög eru "góð" þá lifa þau í nokkrar kynslóðir.
Vera Lynn er 93 ára gömul en á sínum yngri árum söng hún mörg falleg lög og var elskuð af fólkinu.
Í þætti Brittan's got talent þann 17. apríl s.l. söng 10 ára gömul stúlka,
Chloe Hickinbottom þetta sama lag. Því miður er búið að útiloka það að hægt sé að setja myndbandið á aðrar síður, en þið getið horft á það á Youtube.com - Chloe Hickinbottom
Haft var samband við Veru Lynn
fyrir útsendingu þáttarins og taldi hún útilokað að svo ung stúlka gæti sungið lagið á sannfærandi hátt, því hún myndi ekki skilja textann nógu vel.
En eftir að sú gamla hafði horft á þáttinn, breyttist viðhorfið til Chloe og sagði hún yndislegt að svo ung söngkona vildi syngja lögin sín. "Hún söng ekki falskan tón" sagði Vera einnig um Chole.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mögnuð sópranrödd ???
4.5.2010 | 18:08
Tuttugu og fjögurra ára gamall maður frá Taiwan hefur slegið í gegn á youtube með að syngja lag frá Whitney Houston, I will always love you.
Í þessu fyndna myndbandi er "forseti" Bandaríkjanna að tala um þennan söngvara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Margir hata Simon Cowell
3.5.2010 | 10:40
Í American Idol þáttunum hefur Simon
og margir hugsað honum þegjandi þörfina.
Ég held að einhverjir myndu vilja vera í þeim sporum
að valda honum sársauka og standa
í sporum stúlkunnar í þessu myndbandi !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)